Bill Gates fræðir unglinga um það sem þeim mun ekki verða kennt í skólanum en lífsnauðsin er engu að síður að kunna.
Regla 1: Lífið er ekki réttlátt, reyndu að venjast því.
Regla 2: Veröldinni er sama um þitt sjálfsálit. Allir ætlast til að
þú áorkir einhverju áður en þú ferð að vera ánægð/ur með sjálfa/n þig.
Regla 3: Þú munt ekki þéna 4 milljónir á ári strax þegar þú
útskrifast úr skóla og þú verður ekki framkvæmdastjóri fyrr en þú
hefur unnið
fyrir því.
Regla 4: Ef þér finnst kennarinn þinn strangur og erfiður, bíddu
þangað til að þú færð yfirmann.
Regla 5: Að snúa hamborgurum á skyndibitastað er ekki fyrir neðan
þína virðingu.
Amma þín og afi áttu til annað orð yfir það að snúa hamborgurum. Þau
kölluðu það TÆKIFÆRI.
Regla 6: Ef þú klúðrar, þá er það ekki foreldrum þínum að kenna svo
hættu að væla og lærðu af mistökunum.
Regla 7: Áður en þú fæddist þá voru foreldrar þínir ekki svona
leiðinleg eins og þau eru núna. Þau urðu svona eftir að hafa borgað
fyrir uppeldi þitt, þvo fötin þín, þrífa til draslið eftir þig og
hlusta á hvað þú ert COOL og þau eru hallærisleg. Svo áður en þú og
vinir þínir bjarga regnskógunum og leysið heimsmálin, reyndu þá að
taka til og koma reglu á herbergið þitt.
Regla 8: Það getur vel verið að skólinn útskrifi bæði sigurvegara og
tapara en lífið gerir það EKKI. Í sumum skólum er hægt að taka sama
prófið aftur og aftur. Þannig er þetta ekki úti í atvinnulífinu.
Regla 9: Lífið skiptist ekki í annir og þú munt ekki hafa frí öll
sumur. Mjög fáir samstarfsmenn munu hafa áhuga á að hjálpa þér að
finna sjálfan þig. Gerðu það í þínum eigin tíma !
Regla 10: Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveruleikanum þarf
fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna.
Regla 11: Vertu NICE við nördana í skólanum, það endar mjög líklega
með því að þú þarft að vinna hjá einhverjum þeirra.
THAT'S LIFE
Það er nú bara nokkuð til í þessu hjá karlinum.